Hátíðarguðsþjónusta á annan í jólum

Hátíðarguðsþjónusta verður í Strandarkirkju á annan dag jóla, 26. desember 2024 kl. 15:00.

Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt.

Kór Þorláks- og Hjallakirkju syngur undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista, Daði Þór Einarsson leikur á básúnu og sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur þjónar.

Guð gefi þér og þínum gleði og frið á jólum.

Sóknarnefnd og sóknarprestur