Strandarkirkju og umhverfi gert til góða

Viðamiklum endurbótum á nánasta umhverfi Strandarkirkju í Selvogi lýkur í sumarbyrjun en að baki er áralöng vinna við að bæta aðgengi að staðnum. Nú er verið að ganga frá í kringum snyrtingar, sett verður upp lýsing meðfram stígum og komið fyrir söguskilti. Þá er verið að opna nýja heimasíðu fyrir kirkj- una og með því settur punktur aftan við þessar fram- kvæmdir sem hófust fyrir sex árum.

Síaukinn straumur ferðamanna

Með tilkomu Suðurstrandavegar á sínum tíma breyttist Selvogur úr fremur afskekktri sveit yfir í svæði þar sem umferð áhugamanna að staðnum óx verulega. Þótti ekki lengur umflúið að fara í framkvæmdir til að koma til móts við aukinn umgang ferðamanna og bæta aðstöðu gesta sem vildu sækja staðinn heim.

Strandarkirkjunefnd, sem fer með umsjón og rekstur stað- arins og þá um leið kirkjunnar í samráði við sóknarnefnd, taldi nauðsynlegt að bæta aðgengi að kirkjunni og kirkju- garðinum og ráðast í endurbætur á göngustígum en um leið fegra ásýnd og aðkomu að staðnum. Fór hún þess á leit árið 2017 við framkvæmdastjóra Kirkjugarðaráðs að hann kæmi með hugmyndir að lagfæringum á svæðinu. Í framhaldinu vann hann tillögu að endurskipulagi og gerði um leið kostnaðaráætlun sem Strandarkirkjunefnd sam- þykkti. Óskaði nefndin eftir því að hann hefði eftirlit með lagfæringunum í samstarfi við staðarhaldara, Guðmund Örn Hansson. Var ákveðið að sækja um styrk til Sveitar- félagsins Ölfuss og Kirkjugarðasjóðs. Sveitarfélagið taldi sig ekki geta orðið við þeirri beiðni en Kirkjugarðaráð veitti styrk úr Kirkjugarðasjóði til að bæta aðgengið að kirkjugarðinum.

Verkinu skipt í fjóra áfanga

Vegna kostnaðar var framkvæmdunum skipt upp í fjóra áfanga. Fyrsti áfangi var að breikka og helluleggja stíga að kirkju og kirkjugarði og gera þá hjólastólafæra. Var þessi áfangi boðinn út haustið 2018 og verkið falið lægstbjóð- anda, skrúðgarðyrjufyrirtækinu Pró-garðar. Í framhaldinu var samið við fyrirtækið að taka að sér hina þrjá áfangana.

Annar áfangi fólst í að bæta aðgengið að styttunni Land- sýn og gera leiðina að henni hjólastólafæra. Jafnframt var endurnýjaður hellulagður stígur að snyrtingum og hann breikkaður. Lauk þessum áfanga 2021. Ráðist var í þriðja áfanga árið 2023 sem fólst í að gera upp snyrtingarnar, sem voru orðnar slitnar enda í mikilli notkun vegna fjölg- unar ferðamanna. Var torfþak á þeim endurnýjað svo og allar lagnir og nýrri rotþró komið fyrir. Vegna jarðskjálfta laskaðist vatnsbólið og borhola féll saman og þurfti því að bora nýja holu til að afla vatns. Lauk þessum lagfæringum í fyrra og eins og áður sagði er nú verið að reka lokahnykk- inn á þessa fegrun umhverfis og aðkomu að Strandar- kirkju.

Áheitin á Strandarkirkju

Áheit á kirkjur, helga menn og helga dóma voru mjög algeng í kaþólskum sið. Áheit á Strandarkirkju munu löngum ekki hafa verið meiri en almennt gerðist. Þorláksskrín í Skál- holti og Krossinn helgi í Kaldaðarnesi nutu mikillar áheitahelgi umfram aðra helgidóma á Suðurlandi. Eftir siðaskiptin á sextándu öld má segja að áheitatrúna hafi vantað athvarf en fundið sér það í Strandarkirkju.

Beinn og breiður vegur. Annar áfangi verksins fólst í að bæta aðgengi að styttunni Landsýn og gera leiðina að henni hjólastólafæra.

Kirkja ein á svörtum sandi

Strönd í Selvogi var stórbýli og höfðingjasetur lengi fram- an af öldum. Elsta skjalfesta heimild um kirkju á Strönd er frá því um 1200 en öruggt má samt telja að kirkja hafi risið þar skömmu eftir kristnitöku. Kirkjan á Strönd var í kaþólskum sið helguð Maríu guðsmóður og blessuðum Tómasi Becket, erkibiskupi af Kantaraborg. Kirkja var einnig á höfuðbólinu í Nesi fram til 1706 og kirkjurnar því tvær í Selvogi.

Uppblástur og sjávarágangur eyddu landkostum í Selvogi smám saman og stórbýlið Strönd var komið í eyði um 1700. Kirkjan stóð ein eftir á svörtum sandi við opið haf, óvarin fyrir veðrum og vindi, eins og það vígi sem ekki verður unnið né brotið niður. Hún hefur verið endurbyggð nokkrum sinnum á sama grunni. Núverandi kirkja var upphaflega reist árið 1888. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á henni síðan og hún endurvígð 1968 og 1996. Það hefur verið trú manna að Strandarkirkja verði vel við áheitum og sjái alltaf fyrir sér og viðhaldi sínu.

Að beiðni Strandar- kirkjunefndar lagði framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs
fram hugmyndir að breytingum á aðkomu- svæði við kirkjuna sem síðan hefur verið unnið eftir.

Grein úr Bautastein bls 44-46 / 1. tölublað / 29. árgangur / Maí 2024