Veiðimannaguðsþjónusta

Sunnudaginn 12. október verður veiðimannaguðsþjónusta í Strandarkirkju kl. 14:00. Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur þjónar.

Verum öll velkomin, það er gott að koma í kirkju, kyrra hugann og njóta friðar og samveru með Guði og náunganum.

Sóknarnefnd og sóknarprestur