Guðsþjónusta sunnudaginn 14. júní

Guðsþjónusta verður í Strandarkirkju sunnudaginn 14. júní kl. 14:00. Félagar úr Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir þjónar. Verum öll velkomin. Sóknarnefnd og sóknarprestur

Guðsþjónusta 10. maí kl. 14

Guðsþjónusta verður í Strandarkirkju sunnudaginn 10. maí kl. 14.Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista.Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur þjónar.Verum öll velkomin

Hátíðarguðsþjónusta á páskadag

Hátíðarguðsþjónusta verður í Strandarkirkju á páskadag, 5. apríl kl. 15:00. Kór Þorláks- og Hjallasóknar syngur undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista. Sólveig Franklínsdóttir, guðfræðinemi prédikar. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir þjónar fyrir altari Verum öll velkomin

Helgistund á gamlársdag

Helgistund verður í Strandarkirkju á gamlársdag, 31. desember kl. 11:00. Kaffi og konfekt eftir stundina.

Veiðimannaguðsþjónusta

Sunnudaginn 12. október verður veiðimannaguðsþjónusta í Strandarkirkju kl. 14:00. Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur þjónar. Verum öll velkomin, það er gott að koma í kirkju, kyrra hugann og njóta friðar og samveru með Guði og náunganum. Sóknarnefnd og sóknarprestur

Uppskeruguðsþjónusta

Uppskeruguðsþjónusta verður í Strandarkirkju sunnudaginn 28. september kl. 14:00. Sólveig Franklínsdóttir, guðfræðinemi prédikar. Félagar úr Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiða almennan safnaðarsöng. Sóknarprestur þjónar fyrir altari. Verum öll velkomin

Englar og menn – tónlistarhátíð

Alla sunnudaga í júlí verður dagskrá í Strandarkirkju kl. 14:00 á vegum tónlistarhátíðarinnar: Englar og menn. Allar upplýsingar er að finna á Facebooksíðu hátíðarinnar.

Guðsþjónusta 29. júní 2025

Guðsþjónusta verður í Strandarkirkju sunnudaginn 29. júní kl. 14:00. Félagar úr Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiða almennan safnaðarsöng. Sr. Axel Árnason Njarðvík prédikar og þjónar fyrir altari. Verum öll velkomin til kirkju. Sóknarnefnd

Guðsþjónusta 25. maí 2025

Guðsþjónusta verður í Strandarkirkju í Selvogi sunnudaginn 25. maí kl. 14:00. Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Verum öll velkomin til kirkju. Sóknarnefnd og sóknarprestur

Helgihald fellur niður 26. desember

Áður auglýst hátíðarguðsþjónusta sem vera átti í Strandarkirkju í dag, annan í jólum fellur niður vegna veðurs og færðar. Sóknarnefnd og sóknarprestur